Í STUTTU MÁLI


HVENÆR?
10. ágúst 2024

HVAR?
Í Bolungarvík á Vestfjörðum. Athöfn og dansiball verða við bústaðinn Skriðu, borðhald í Félagsheimilinu í Bolungarvík.

KLUKKAN HVAÐ?
Mæting kl. 15:30 í Félagsheimilið í Bolungarvík, þaðan fer rúta á Skriðu fyrir athöfnina kl. 16.
 
Gestir sem gista á Ísafirði geta tekið rútu frá bílastæði Nettó kl. 15.

HVAÐ ER Í MATINN?
Fiskihlaðborð frá Tjöruhúsinu 
á Ísafirði.

KLÆÐABURÐUR?
Gleðjumst í sparifötunum, það er ekkert tiltekið þema. Dansiballið verður í upphituðum tjöldum og athöfnin úti. Borðhaldið verður innandyra. 





Í Bolungarvík laugardaginn 10. ágúst næstkomandi ætlum við, Margrét Aðalheiður og Friðgeir Ingi, að gifta okkur. Hátíðarhöldin hefjast klukkan fjögur með giftingarathöfn sem fer fram við fuglasöng í skjóli fjalla á Skriðu í Syðridal.

Í framhaldi af því verður blásið til veislu sem hefst með borðhaldi og skemmtun í Félagsheimilinu í Bolungarvík. Þá verður aftur haldið fram á Skriðu þar sem slegið verður upp dansiballi og fögnuðinum framhaldið. 
RÚTUR


KL. 15:00

Gestir sem gista á Ísafirði mæta á bílastæðið fyrir utan Nettó á Ísafirði. Þeim er ekið að félagsheimilinu í Bolungarvík.

KL. 15:30

Mæting í félagsheimilið í Bolungarvík. Gestum er ekið að Skriðu fyrir athöfn. Að athöfn lokinni aka rútur gestum aftur að félagsheimili.

KL. 21:00

Rútur byrja að ferja gesti aftur á Skriðu fyrir dansiball.

KL. 23:00 – 03:00

Rútuferðir verða frá Skriðu til bæði Bolungarvíkur og Ísafjarðar á u.þ.b. hálftíma fresti. Stoppað verður við Sundlaugina í Bolungarvík og á bílastæðinu framan við Nettó á Ísafirði. Látið bílstjórann ef óskað er eftir að stoppað sé annars staðar. 

Gestir sem ekki gista í Bolungarvík eða á Ísafirði gera eigin ráðstafanir til að koma sér að gististað. 

Við hlökkum til að gleðjast með ykkur!